Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 09:50
Elvar Geir Magnússon
„Söguleg stund fyrir Bodö og norskan fótbolta í heild“
Leikmenn Bodö/Glimt fagna sigrinum í gær.
Leikmenn Bodö/Glimt fagna sigrinum í gær.
Mynd: EPA
Aspmyra leikvangurinn, heimavöllur Bodö/Glimt.
Aspmyra leikvangurinn, heimavöllur Bodö/Glimt.
Mynd: EPA
Evrópuævintýri norska liðsins Bodö/Glimt heldur áfram en liðið hefur náð mögnuðum úrslitum síðustu ár. Í gær vann liðið 2-1 útisigur gegn Inter og einvígið gegn toppliði ítölsku A-deildarinnar samtals 5-2.

Borgin Bodö er staðsett rétt norðan heimskautsbaugs og mikið verið rætt og ritað um þennan frækna árangur liðsins en það var slegið út af Tottenham í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fyrra.

Bodö/Glimt heldur áfram að skrifa kafla í sögubækur norska fótboltans og er nú komið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

„Þetta er söguleg stund fyrir Bodö og norskan fótbolta í heild sinni," sagði Kjetil Knutsen, stjóri norska liðsins, eftir sigurinn á San Siro.

Jens Petter Hauge skoraði sitt sjötta mark í keppninni og lagði upp seinna markið.

„Þetta hljómar óraunverulega en hingað erum við komnir, meðal sextán síðustu liða í keppninni. Það verður virkilega spennandi að sjá hvað næstu tveir leikir færa okkur," sagði Hauge

„Þetta er magnað. Fyrir félagið og fyrir borgina er þetta ótrúlegt. Ég held að enginn hafi búist við því að við myndum vinna Manchester City, Atletico Madrid og núna Inter tvisvar," sagði fyrirliðinn Patrick Berg.
Athugasemdir
banner
banner