Casemiro, miðjumaður Man Utd, er sagður vera spenntur fyrir því að vera áfram í Evrópu þegar samningur hans við enska félagið rennur út í sumar.
Þessi 34 ára gamli Brasilíumaður tilkynnti í síðasta mánuði að hann muni yfirgefa Man Utd eftir tímabilið.
Hann hefur verið orðaður við MLS deildina í Bandaríkjunum en The Sun segiir að hann gæti verið á leið til Ítalíu. Það hefur verið sagt að Casemiro hafi bent á Seríu A sem mögulegan áfangastað.
Luka Modric, fyrrum liðsfélagi hans hjá Real Madrid, er á mála hjá AC Milan.
Casemiro hefur skorað fimm mörk og lagt upp tvö í 25 leikjum í úrvalsdeildinni á yfirstandandi tímabili.
Athugasemdir


