Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 00:03
Elvar Geir Magnússon
Locatelli: Langar mest að gráta
Baris Alper Yilmaz og Manuel Locatelli kljást um knöttinn.
Baris Alper Yilmaz og Manuel Locatelli kljást um knöttinn.
Mynd: EPA
„Mann langar mest að gráta. Við lögðum hjarta og sál í leikinn," sagði Manuel Locatelli eftir að Juventus féll úr leik í Meistaradeildinni eftir framlengdan leik gegn Galatasaray.

Tyrkneska liðið vann 5-2 sigur í fyrri leiknum og margir stimpluðu það ómögulegt fyrir Juventus að ná að snúa dæminu við. En Juventus náði á magnaðan hátt að koma einvíginu í framlengingu, og það þrátt fyrir að missa Lloyd Kelly af velli með rautt spjald á 48. mínútu.

Það var hinsvegar komin þreyta í 'gömlu konuna' í framlengingu og Galatasaray tryggði sæti í 16-liða úrslitum með mörkum frá Victor Osimhen og Baris Alper Yilmaz.

Galatasaray vann einvígið samtals 7-5 en eftir frammistöðuna í seinni leiknum þá klöppuðu stuðningsmenn Juventus fyrir sínum mönnum eftir leikinn.

„Við höfðum fulla trú á þessu. Andrúmsloftið á vellinum var magnað og við sugum í okkur orkuna. Baráttuandinn sem við sýndum er eitthvað sem við þurfum að taka með okkur í framhaldið. Svona á Juventus að vera," sagði Locatelli.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner