Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 25. febrúar 2026 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Góðar fréttir fyrir Tottenham
Mynd: EPA
Tottenham hefur enn ekki unnið leik á árinu en það eru góðar fréttir í herbúðum félagsins að Pedro Porro og Kevin Danso eru byrjaðir að æfa eftir meiðsli.

Þeir hafa báðir verið fjarverandi síðan í lok janúar.

Igor Tudor spilaði með fimm manna varnarlínu í 4-1 tapi gegn Arsenal um síðustu helgi en koma Porro gæti gert honum kleift að spila með fjögurra manna línu.

Koma Danso er kærkomin þar sem Cristian Romero er í banni. Tottenham heimsækir Fulham á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner