Atalanta 4 - 1 Borussia D. (4-3 samanlagt)
1-0 Gianluca Scamacca ('5 )
2-0 Davide Zappacosta ('45 )
3-0 Mario Pasalic ('57 )
3-1 Karim Adeyemi ('75 )
4-1 Lazar Samardzic ('90 , víti)
Rautt spjald: Ramy Bensebaini, Borussia D. ('90)
1-0 Gianluca Scamacca ('5 )
2-0 Davide Zappacosta ('45 )
3-0 Mario Pasalic ('57 )
3-1 Karim Adeyemi ('75 )
4-1 Lazar Samardzic ('90 , víti)
Rautt spjald: Ramy Bensebaini, Borussia D. ('90)
Atalanta er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir ótrúlega dramatík.
Atalanta minnkaði muninn í einvíginu eftir aðeins fimm mínútna leik þegar Gianluca Scamacca skoraði eftir vandræðagang í vörn Dortmund.
Þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks jafnaði Atalanta metin í einvíginu þegar Davide Zappacosta skoraði með skoti sem fór af varnarmanni og í netið.
Það var ekki mikið búið af fyrri hálfleik þegar Mario Pasalic skoraði þriðja mark Atalanta og fullkomnaði endurkomuna. Dortmund gafst hins vegar ekki upp og Karim Adeyemi skoraði með laglegu skoti þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.
Það stefndi allt í framlengingu en á lokasekúndum leiksins fékk Ramy Beensebaini, varnarmaður Dortmund, rautt spjald fyrir að sparka í andlit Nikola Kristovic og vítaspyrna dæmd.
Lazar Samardzic skoraði úr vítinu og innsiglaði sigur Atalanta og fullkomnaði endanlega ótrúlega endurkomu liðsins.
Atalanta mætir annað hvort Arsenal eða Bayern í 16-liða úrslitum.
Athugasemdir




