Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pablo Punyed: Draumatríó til að vinna með
Pablo hér með bikarinn.
Pablo hér með bikarinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Pablo var ráðinn til Hauka í vetur. Til vinstri á myndinni er Óskar Örn Hauksson.
Pablo var ráðinn til Hauka í vetur. Til vinstri á myndinni er Óskar Örn Hauksson.
Mynd: Haukar
Varð Íslandsmeistari með Víkingi í fyrra.
Varð Íslandsmeistari með Víkingi í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Pétur er þjálfari Hauka.
Guðjón Pétur er þjálfari Hauka.
Mynd: Haukar
Pablo er goðsögn í Víkinni.
Pablo er goðsögn í Víkinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„ Þetta var ekki auðvelt," sagði Pablo Punyed, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, við Fótbolta.net í dag. Var hann þá spurður út í sinn fyrsta titil með Haukum sem vannst á laugardaginn er Haukar fóru með sigur af hólmi í B-deild Lengjubikarsins.

„Það voru krefandi aðstæður, mikill vindur á annað markið, 25 meter á sekúndu. En skemmtilegt að fara til Ólafsvíkur og spila. Ég hafði ekki spilað á gervigrasinu þarna áður. Þannig að það var skemmtilegt að fara í ferðalag með strákunum og bara alltaf gaman að fara einhvern stað út á landi eða í útileik og ná að vinna. Það er alltaf skemmtilegt."

Pablo er einn sigursælasti leikmaður íslenska fótboltans undanfarin misseri, varð til að mynda þrisvar Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari með Víkingum þar sem hann lék í fimm ár áður en hann fór í Hauka.

„Þetta snýst meira um að venjast því að vinna og venjast því að berjast fyrir stig eða sigur. Við náðum að gera það á þessum degi og ég er ánægður með það," segir Pablo í samtali við Fótbolta.net.

Þetta var besti kosturinn
Pablo er að finna sig vel í nýju hlutverki á Ásvöllum en segir það krefjandi að vera bæði leikmaður og aðstoðarþjálfari.

„Já, það er náttúrulega erfitt að byrja aftur 'upp á nýtt' en ég er að læra eins mikið frá strákunum og þeir eru að læra frá mér held ég. Það er skemmtilegt að taka allt það sem ég hef lært í gegnum árin og reyna að koma því fram í 2. deild. Ég er ekki meðvitaður mikið um liðin í 2. deild, vellina, dómarana og leikmennina. Það er aðeins öðruvísi og það er skemmtilegt fyrir mig að prófa eitthvað nýtt," segir miðjumaðurinn.

„Það voru margir möguleikar en á endanum snýst þetta um það sem ég er að gera fyrir utan fótboltann og hvernig mig langar að þróast næstu 30-40 árin í lífi mínu. Þetta var besti kosturinn."

„Þetta er búið að vera smá 'tricky'. Ég er í klefanum en samt er ég líka að raða upp æfingum og svona. Það er ekki auðvelt en mér finnst það gaman. Mér finnst gaman að prófa eitthvað nýtt og stíga fyrstu skrefin á þjálfaraferlinum. Það er eðlilegt að byrja einhvers staðar þar sem ég get gert mistök sem eru ekki leyfð á hærra stigi. Ég er að læra eins mikið frá þeim í kringum mig og þeir eru að læra frá mér. Ég er með nokkra þjálfara í efstu deild karla og kvenna sem ég er að læra af og það er skemmtilegt að vera í Haukum."

Erum mjög þrjóskir allir
Það er óhætt að segja að Haukar séu komnir með eitt áhugaverðasta þjálfarateymið í fótboltanum á Íslandi. Í teyminu eru núna fjórir menn sem hafa samtals unnið 15 Íslandsmeistaratitla og fjölda annarra titla ofan á það. Guðjón Pétur Lýðsson tók við þjálfun Hauka eftir síðasta tímabil en hann hefur fengið Pablo, Óskar Örn Hauksson og Daða Lárusson með sér í teymið.

„Þeir eru geggjaðir," segir Pablo um teymið. „Gaui, Óskar og Daði eru draumatríó til að vinna með. Ég er yngstur af þeim og er að læra mikið af þeim. Við erum ekki með mikla reynslu í þjálfun ég, Óskar og Gaui. Daði er með meiri reynslu í því. Við erum að læra fljótt og það er gott að vera með traust á milli hvors annars og geta sagt hluti hreint og beint eins og við þrír höfum alltaf gert í gegnum ferilinn. Það er gaman að vera partur af þessu."

„Við erum mjög þrjóskir allir og höfum verið það í gegnum ferilinn okkar. Við vorum ekki alltaf bestir, fljótastir eða sterkastir. Við vorum alltaf þrjóskir og vildum gera hluti vel. Við erum vinnusamir og það speglast í liðinu okkar. Við viljum sjá það í sumar."

Ballið byrjar á föstudaginn
Haukar hefja leik í 2. deild á föstudaginn er þeir mæta Þrótti Vogum á útivelli. Það verður hörkuleikur.

„Það er náttúrulega skemmtilegt að fyrsti leikur sé á föstudaginn og við erum að spila í Vogunum. Þeir eru gott og vel þjálfað lið, Auðun (Helgason) er búinn að gera góða hluti þar og þetta er hópur sem búinn er að vera saman lengi. Þeir enduðu í þriðja sæti í fyrra og eiga að vera líklegri. Það er gaman að deildin sé að fara af stað en þetta er bara einn leikur af 22 sem við ætlum að berjast í."

Þá var dregið í Gatorade bikarnum í dag, sem er bikarkeppni neðri deildar karla og er Gatorade í samstarfi við Fótbolta.net. Haukar fá heimaleik gegn Hetti, en úrslitaleikurinn í keppninni fer fram á Laugardalsvelli.

„Það er Höttur í 32-liða úrslitum og það er rosalega skemmtilegt. Þetta er skemmtilegur bikar og skemmtileg pæling. Ég sé þetta sem tækifæri fyrir félagið að hafa aukaleiki í sumar. Vonandi verður þetta sterk bikarkeppni sem getur verið lengi í íslenskum fótbolta," sagði Pablo að lokum.
Slapp
banner
banner
banner