Jón Dagur Þorsteinsson var á skotskónum fyrir lið Brann er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Rosenborg á útivelli í norsku Úrsvalsdeildinni fyrr í dag.
Rosenborg 1 - 1 SK Brann
1-0 Iver Fossum ('13 )
1-1 Jon Dagur Thorsteinsson ('19 )
Rosenborg 1 - 1 SK Brann
1-0 Iver Fossum ('13 )
1-1 Jon Dagur Thorsteinsson ('19 )
Jón Dagur gerði jöfnunarmark Brann á 19. mínútu leiksins með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu eftir að Iver Fossum hafði komið heimamönnum yfir. Ekkert frekar var skorað í leiknum sem lauk með 1-1 jafntefli
Norskir fjölmiðlar hafa verið gagnrýnir á frammistöðu Jóns Dags þar sem Brann hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu sex í deildinni og situr neðarlega á töflunni.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, hefur opinberlega varið Jón Dag og lýst yfir þreytu á því að einstaka leikmenn séu gerðir að „blórabögglum“ fyrir slakt gengi liðsins í heild.
Brann situr nú í 13. sæti norsku úrvalsdeildarinnar eftir sex umferðir með fjögur stig.


