Þriðji leikur í fyrstu umferð Bestu Deildar Kvenna var viðureign Fram og ÍBV á Lambhagavellinum. Leiknum endaði með 4-3 sigri ÍBV.
Anton Ingi stýrði Fram liðinu í fyrsta skipti í deildinni eftir að hafa tekið við liðinu eftir síðasta tímabil.
„Mikið svekkelsi, svekktastur með að við töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur í dag. Ódýr og kærulaus mörk sem við fáum á okkur."
Eyjakonur nýttu hornspyrnurnar vel og skoruðu þrjú mörk upp úr þeim í fyrri hálfleik.
„Eitt mark kemur fyrir en þrjú í sama leiknum er svoldið skortur á einbeitingu og ábyrgð."
„Svo seinni hálfleikurinn, allur meðbyrin var með okkur þarna áður minnkum í 3-2 en þversendingin sem hún (Allison Grace) kemst inní síðan var svona blautt í andlitið."
„Jákvæði punkturinn í þessu er að skora þrjú, það hefur verið okkar veikleiki í undirbúningstímabilinu að skora mörk. En það er dýrkeypt að þurfa skora fleiri en fjögur ef þú ætlar að vinna leikinn."
Næstu leikur Fram er á miðvikudaginn 29.apríl gegn Breiðablik. „Gott og verðugt verkefni. Við þurfum aðeins að herða okkur í föstum leikatriðum ef við ætlum að vinna Blika."
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
























