Tottenham er í viðræðum við Sebastian Kehl um að taka við sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Hinn 46 ára gamli Kehl hefur verið án starfs frá því hann yfirgaf Borussia Dortmund í síðasta mánuði. Kehl er goðsögn hjá Dortmund en hann spilaði þar lengst af á sínum leikmannaferli líka og var lengi með fyrirliðabandið.
Hinn 46 ára gamli Kehl hefur verið án starfs frá því hann yfirgaf Borussia Dortmund í síðasta mánuði. Kehl er goðsögn hjá Dortmund en hann spilaði þar lengst af á sínum leikmannaferli líka og var lengi með fyrirliðabandið.
Talið er að sá sem Tottenham ræður sem nýjan yfirmann fótboltamála muni starfa samhliða Johan Lange, sem gegnir því hlutverki nú þegar.
Lange hefur sætt gagnrýni frá stuðningsmönnum vegna leikmannakaupa síðan hann kom til félagsins, en þau hafa þótt eiga sinn þátt í því að staða Spurs í ensku úrvalsdeildinni er í hættu.
Sebastian Kehl átti misjöfnu gengi að fagna á fjórum árum sínum sem yfirmaður fótboltamála hjá Dortmund. Meðal vel heppnaðra félagaskipta hjá Kehl voru varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck og framherjinn Serhou Guirassy.
Kehl komst þó í fréttirnar síðasta sumar þegar hann lenti upp á kant við föður Jude Bellingham. Mark Bellingham var ósáttur eftir að yngri sonur hans, Jobe, var tekinn af velli í hálfleik í sínum fyrsta leik í Bundesligunni fyrir Dortmund.
Bellingham eldri hitti Kehl fyrir utan búningsklefa Dortmund þar sem þeir áttu í löngum orðaskiptum, en hann reyndi einnig að ná tali af þjálfaranum Niko Kovac og fór ekki í felur með skoðanir sínar. Í kjölfarið ákvað Dortmund að banna fjölskyldum leikmanna aðgang að svæðinu við búningsklefana.
Tottenham er sem stendur í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.




