PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   sun 26. apríl 2026 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu draumamarkið sem kom City í úrslit - „Hann á þetta skilið"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Nico Gonzalez, miðjumaður Manchester City, skoraði sigurmark liðsins gegn Southampton í gær.

Liðin mættust á Wembley í undanúrslitum enska bikarsins og skoraði Gonzalez draumamark þegar skammt var til leiksloka. Það má segja að hann hafi þrumað City í úrslitaleikinn.

Spánverjinn fékk boltann fyrir utan teig, rúmlega 27 metrum frá marki Southampton og lét vaða. Boltinn söng í netinu og City liðið komið yfir eftir að hafa lent undir.

City hefur ekki skorað mark af lengra færi á tímabilinu.

City er á leið í sinn fjórða úrslitaleik í enska bikarnum í röð.

„Hví?íkt mark sem hann skoraði. Hann á þetta skilið. Hann hefur átt topp tímabil, það að koma inn fyrir Rodri er alls ekki auðvelt. Hann er leikmaður sem þarf að hafa meiri trú á sér, vilja gera meira. Stundum spilar hann of öruggt," sagði Pep Guardiola, stjóri City, um markaskorarann eftir leik.

City mætir annað hvort Chelsea eða Leeds í úrslitaleiknum, en þau mætast á Wembley í seinni undanúrslitaleiknum klukkan 14:00 í dag.


Slapp
banner
banner
banner