PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 23:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Birta skoraði gegn Cecilíu sem gat þó fagnað í leikslok - Hvað gerir Kristófer?
Inter í Meistaradeildina
Kvenaboltinn
Birta Georgsdóttir á skotskónum.
Birta Georgsdóttir á skotskónum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Cecilía og Inter á leið í Meistaradeildina.
Cecilía og Inter á leið í Meistaradeildina.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kristófer Jónsson.
Kristófer Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Inter tryggði sér í dag sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili með útisigri á Genoa í ítölsku deildinni í dag.

Leikurinn var Íslendingaslagur því Birta Georgsdóttir byrjaði í sóknarlínu Genoa og Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í marki Inter. Telma Ívarsdóttir er varamarkvörður Inter og var á bekknum og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á sem varamaður í liði Inter á 71. mínútu. Allar fjórar hafa verið í undanförnum landsliðshópum.

Á 15. mínútu skoraði Birta með skalla af markteig eftir hornspyrnu, varnarmenn Inter gleymdu sér og Birta kom boltanum í netið. Þetta var hennar annað mark fyrir Genoa en hún kom frá Breiðabliki í vetrarglugganum.

Inter jafnaði á 52. mínútu með marki frá Mariju Milinkovic eftir hornspyrnu. Hún skoraði svo aftur á 66. mínútu og jú, það mark kom líka eftir hornspyrnu. 1-2 útisigur hjá Inter staðreynd og liðið tryggir sér með því sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Tíu stig eru niður í Napoli þegar níu stig eru í pottinum. Inter er í 2. sætinu, sex stigum á eftir toppliði Roma. Genoa er hins vegar í botnsætinu, fjórum stigum á eftir Ternana.

Í ítölsku C-deildinni spilaði Triestina lokaleik sinn á tímabilinu og tapaði 1-6 gegn Vicenza á heimavelli. Kristófer Jónsson (2002) er lykilmaður í liði Triestina og var á sínum stað í byrjunarliðinu.

Triestina er fallið niður í D-deildina en það er vegna þess dregin voru 24 stig af liðinu af ítalska sambandinu í vetur. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvað Kristófer gerir í sumar en hann gekk í raðir félagsins 2023 eftir að hafa verið hjá Val. Hann er uppalinn hjá Haukum en miðjumaðurinn hefur einnig verið á mála hjá Venezia á sínum ferli.

Samkvæmt Transfermarkt er hann með samning við Triestina út næsta tímabil.
Slapp
banner
banner
banner