PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Davíð Smári: Kom mér verulega á óvart
Meðvitaður um áhuga Vals - „Þetta er bara á milli félaganna"
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
   lau 25. apríl 2026 16:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Lengjudeildin
'Mér finnst þetta geggjað'
'Mér finnst þetta geggjað'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Svekkjandi ef ég á að vera hreinskilinn. Mér fannst þetta vera leikur tveggja hálfleika ef ég á að vera hreinskilinn, fannst við aðeins ofan á í fyrri og fórum aðeins of aftarlega í seinni sem var ekki planið hjá okkur," segir Damir Muminovic, fyrirliði Grindavíkur, eftir jafntefli gegn Vestra á útivelli í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  1 Grindavík

„Þeir byrjuðu að sækja meira og meira á okkur og einhvern veginn dettur boltinn fyrir þá og þeir skora. Kannski bara sanngjarnt eftir á. Ég er ekki með skýringu á þessu, við þurfum að fara yfir þetta og gera betur næst. Þetta er fyrsti leikur og það er ekki auðvelt að koma hingað og ná í þrjú stig. Kannski er ég að setja of mikla kröfu á mig sjálfan og liðið, kannski er liðið bara gott."

„Mér finnst þetta geggjað, ég held ég hefði örugglega ekki verið ánægður ef ég hefði farið eitthvert annað en til Grindavíkur. Ég er búinn að vera hérna í nokkra mánuði, vel tekið á móti mér af fólkinu í kringum klúbbinn og liðið. Við erum með góðan þjálfara, Ray er góður maður og auðvelt að bakka hann upp í þeim hlutum sem hann vill gera. Þannig ég er virkilega ánægður,"
segir Damir um lifið hjá nýju félagi og ákvörðun sína að semja við félagið í vetur.

„Við höfum trú á hópnum sem við erum með, ég skipti mér ekki af planinu á leikmannamarkaðnum, þjálfarinn og stjórnin sjá um það."

„Það er geggjað, Gulli er virkilega efnilegur, U19 landsliðsmaður og geggjað að fá hann. Vonandi springur hann út hjá okkur,"
sagði Damir um komu Gunnleifs Orra Gunnleifssonar (2008) sem kom frá Breiðabliki í gær.
Slapp
banner
banner