Hin tvítuga Angela Mary Helgadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Þór/KA sem gildir út 2027.
Angela, sem fagnaði tvítugsafmæli sínu í byrjun árs, á að baki 76 meistaraflokksleiki.
Angela er varnarmaður og hefur bæði leyst stöðu miðvarðar og bakvarðar.
Hún hefur spilað 64 leiki með Þór/KA, þar af 40 leiki í Bestu deildinni, en áður lék hún með Hömrunum í 2. deild þar sem hún lék tólf leiki.
Á síðasta tímabili var hún valin í lið sjöttu umferðar Bestu deildarinnar fyrir frábæra frammistöðu gegn Fram í Úlfarsárdal.


