Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, er duglegur að nota samfélagsmiðilinn X þessa dagana.
Fer hann inn á miðilinn til að ræða málefni norðurslóða, stjórnmál og ýmislegt fleira. Meira að segja fótbolta.
Fer hann inn á miðilinn til að ræða málefni norðurslóða, stjórnmál og ýmislegt fleira. Meira að segja fótbolta.
Ólafur Ragnar deildi nefnilega myndbandi um helgina af einni frægustu skiptingu fótboltasögunnar; þegar Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á fyrir föður sinn Arnór Guðjohnsen í landsleik gegn Eistlandi.
Það eru nefnilega 30 ár frá þessari frægu skiptingu en Ólafur Ragnar deildi því til fylgjenda sinna að núna væri næsta kynslóð tekin við.
„Og nú er kyndillinn borinn áfram af þriðju kynslóðinni," skrifar Ólafur Ragnar en synir Eiðs Smára, Andri Lucas og Daníel Tristan, eru í dag hluti af A-landsliði karla.
Ólafur Ragnar lét stundum sjá sig á landsleikjum þegar hann var forseti og fylgist greinilega enn nokkuð vel með.
And now the torch is carried by the 3rd generation! https://t.co/4yfegc1QFf
— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) April 25, 2026




