PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikarinn: KV skoraði tíu gegn Kormáki/Hvöt
Mynd úr klefanum eftir leik.
Mynd úr klefanum eftir leik.
Mynd: KV
Vilhelm skoraði þrennu.
Vilhelm skoraði þrennu.
Mynd: Alberto Larrea
KV 10 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('10 )
2-0 Tristan Alex Tryggvason ('23 )
3-0 Papa Diounkou Tecagne ('24 , )
4-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('30 )
5-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('41 )
6-0 Eyþór Daði Kjartansson ('43 )
7-0 Aron Bjarki Jósepsson ('49 )
8-0 Eyþór Daði Kjartansson ('51 )
9-0 Freyr Þrastarson ('80 )
10-0 Viktor Már Heiðarsson ('83 )

KV tók á móti Kormáki/Hvöt í lokaleik riðils 1 í B-deild Lengjubikarsins og skemmst er frá því að segja að KV slátraði gestunum. 10-0 urðu lokatölur, Vilhelm Bjarki Viðarsson skoraði þrennu og Eyþór Daði Kjartansson skoraði tvennu og fimm aðrir komust á blað. Þar á meðal var gamla kempan Aron Bjarki Jósepsson sem lék með KR um árabil.

KV endar í 2. sæti riðilsins með tíu stig úr leikjunum fimm. Kormákur/Hvöt endar hins vegar á botni riðilsins án stiga og með -27 í markatölu.

Kormákur/Hvöt endaði í 4. sæti 2. deildar í fyrra en hefur misst marga menn í vetur. KV endaði í 7. sæti 3. deildar.

KV Eiður Orri Kristjánsson (m), Jakob Már Österby Ævarsson, Agnar Þorláksson, Arnar Kári Styrmisson, Aron Bjarki Jósepsson, Vilhelm Bjarki Viðarsson, Óliver Dagur Thorlacius, Eyþór Daði Kjartansson, Fuseini Issah, Konráð Bjarnason, Tristan Alex Tryggvason,
Varamenn Þorsteinn Örn Bernharðsson, Viktor Már Heiðarsson, Freyr Þrastarson, Oddur Ingi Bjarnason, Jökull Tjörvason, Einar Þórðarson, Björgvin Geir Björgvinsson

Kormákur/Hvöt Uros Djuric (m), Pol Morlans Martin, Papa Diounkou Tecagne, Eyjólfur Örn Þorgilsson, Ingvi Rafn Ingvarsson, Stefán Freyr Jónsson, Bilal Kamal, Sigurður Bjarni Aadnegard, Finnur Karl Jónsson, Trausti Þór Þorgilsson, Arnór Ágúst Sindrason,
Varamenn Jón Þór Valdimarsson (m), Valdimar Logi Guðmannsson
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4
Slapp
banner
banner
banner