Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 13:21
Elvar Geir Magnússon
Arsenal þurfi meira frá Rice
Mynd: EPA
Ian Ladyman íþróttafréttamaður hjá Daily Mail segir að miðjumaðurinn Declan Rice þurfi að stíga upp og sýna meira fyrir Arsenal.

Eftir nauman sigur á Newcastle um helgina er Arsenal aftur á toppnum, með þriggja stiga forystu en Manchester City á leik til góða.


„Declan Rice er virkilega góður fótboltamaður en ég vildi fá meira frá honum um helgina," segir Ladyman.

„Arsenal þarf einhvern sem er tilbúinn að ýta þeim yfir línuna og landa titlum. Eins og Manchester United hafði í Roy Keane, Chelsea hafði í Frank Lampard, City hafði í Yay Toure og Liverpool í Mohamed Salah."

„Rice hefur bætt Arsenal síðan hann kom frá West Ham og hans er saknað þegar hann er ekki til staðar. En hann kostaði yfir 100 milljónir punda og þegar ég horfði á hann spila gegn Newcastle á laugardag þá var ekki laust við að ég vildi sjá meira koma út úr honum."

„Ég vil sjá hann sem besta leikmanninn á vellinum og láta meira til sín taka á báðum endum. Hann mætti taka meiri áhættu í spilamennsku sinni en ekki bara gera hlutina einfalda."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner