Freiburg, með Ingibjörgu Sigurðardóttur innanborðs, tapaði fyrir Bayer Leverkusen, 4-1, í 23. umferð þýsku deildarinnar í dag.
Úrslitin eru ekki að skila sér hjá Freiburg sem var að tapa þriðja leiknum í röð.
Ingibjörg kom inn af bekknum í hálfleik þegar staðan var 3-0 fyrir Leverkusen.
Freiburg er í 7. sæti deildarinnar með 30 stig þegar þrjár umferðir eru eftir.
Hildur ANtonsdóttir lék allan leikinn með Madrid CFF í 2-0 tapi gegn Real Sociedad í Liga F á Spáni. Madrid er í 10. sæti með 31 stig. Liðið er öruggt með sæti sitt í deildinni, en á ekki möguleika á Evrópusæti þegar fjórir leikir eru eftir.
Íris Ómarsdóttir byrjaði og Hlín Eiríksdóttir kom inn á þegar Fiorentina gerði 2-2 jafntefli við Ternana í Seríu A á Ítalíu.
Katla Tryggvadóttir var ónotaður varamaður hjá Fiorentina sem er í 7. sæti með 27 stig.




