PSG steig eitt skref til viðbótar að franska meistaratitlinum þegar liðið sigraði Angers mjög sannfærandi, 0-3, á útivelli í gær.
Luis Enrique, stjóri PSG, náði að hvíla nokkra mikilvæga leikmenn í gær því framundan er leikur gegn Bayern München í Meistaradeildini, en það hafði lítil áhrif á liðið sem var komið í 0-3 eftir rúmlega 50 mínútna leik. PSG var með yfirburði í allri tölfræði og mörk frá Lee Kang-in, hinum 19 ára Senny Mayulu og Lucas Beraldo sáu til þess að liðið er nú sex stigum á undan Lens þegar fjórar umferðir eru eftir.
PSG og Lens eiga eftir að mætast og munu gera það 13. maí á heimavelli Lens. Ef PSG vinnur deildina verður það fjórtándi meistaratitillinn í sögu félagsins og sá tólfti frá árinu 2012. Liðið hefur unnið deildina fjórum sinnum í röð.
Lyon vann mikilvægan sigur í Meistaradeildarbaráttunni í gær þegar liðið lagði fallbaráttulið Auxerre og er nú þremur stigum á undan Lille sem heimsækir Paris FC í dag.
Mónakó er hins vegar að missa af pakkanum, liðið missti niður tveggja marka forystu geng Toulouse í gær og er nú sex stigum á eftir Lyon.

Toulouse 2 - 2 Monaco
0-1 Jordan Teze ('6 )
0-2 Lamine Camara ('18 )
1-2 Jacen Russell-Rowe ('61 )
2-2 Emersonn ('90 )
Angers 0 - 3 Paris Saint Germain
0-1 Lee Kang-In ('7 )
0-2 Senny Mayulu ('39 )
0-3 Lucas Beraldo ('52 )
Rautt spjald: Goncalo Ramos, Paris Saint Germain ('74)
Lyon 3 - 2 Auxerre
1-0 Roman Yaremchuk ('19 )
1-1 Sinaly Diomande ('35 )
2-1 Corentin Tolisso ('66 )
3-1 Roman Yaremchuk ('71 )
3-2 Bryan Okoh ('88 )