„Við hefðum getað gert betur. Við fáum í seinni hálfleik 2-3 möguleika til að bæta við. Ég er ósáttur við frammistöðu míns liðs síðustu 20-30 mínúturnar. Það var eitthvað einbeitingarleysi, þreyta eða annað sem spilaði inn í," segir Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, eftir jafntefli við Völsung á Húsavík í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Völsungur 1 - 1 Leiknir R.
„Við vorum búnir að halda Völsungi frá markinu okkar meira og minna frá markinu okkar fyrir utan kannski eitt atvik í hvorum hálfleik. Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það."
„Ég er svekktur með úrslitin en svekktari með frammistöðuna, sérstaklega seinni hluta leiks."
Er liðið tilbúið í tímabilið?
„Líkamlega og taktískt erum við tilbúnir. Það eru margir ungir með okkur í dag, við eigum inni tvo aðeins reyndari sem mögulega hefðu getað hjálpað okkur í dag. Mér finnst að við séum tilbúnir, en síðan er þetta bara fótbolti, það er ekkert gefins, þú verður að hafa fyrir hlutunum og klára leiki og allt það," segir þjálfarinn.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst























