Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 19:02
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Mikael Egill sneri aftur í tapi gegn Como - Inter getur tryggt titilinn í næstu umferð
Inter er einum sigri frá titlinum
Inter er einum sigri frá titlinum
Mynd: EPA
Mikael Egill spilaði í tapi gegn Como
Mikael Egill spilaði í tapi gegn Como
Mynd: EPA
Inter er einum sigri frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn á Ítalíu þrátt fyrir að hafa kastað frá sér tveggja marka forystu í 2-2 jafnteflinu gegn Torino í kvöld.

Það var vitað fyrir leikinn að jafntefli eða sigur kæmi Inter í frábæra stöðu fyrir síðustu fjórar umferðirnar og stefndi allt í góðan sigur.

Marcus Thuram og Yann Bisseck komu liðinu í 2-0. Thuram skoraði á 23. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Federico Dimarco sem var hans sautjánda stoðsending á tímabilinu. Sögulegt hjá Dimarco sem setti nýtt stoðsendingamet í deildinni.

Yann Bisseck stangaði hornspyrnu Di Marco í netið á 61. mínútu með átjándu stoðsendingu sinni. Ótrúlegt tímabil ítalska bakvarðarins.

Þessi forysta var ekki nóg gegn heimamönnum í Torino sem jöfnuðu metin á níu mínútum. Giovanni Simeone minnkaði muninn á 70. mínútu jafnaði Króatinn Nikola Vlasic með marki úr vítaspyrnu á 79. mínútu.

2-2 jafntefli staðreynd en Inter er áfram á toppnum með 79 stig, tíu stigum meira en Napoli sem er í öðru sæti. Í næstu umferð getur Inter tryggt sér titilinn með sigri á Parma eftir viku.

Mikael Egill Ellertsson sneri aftur úr leikbanni með Genoa sem tapaði fyrir Como, 2-0, á heimavelli. Grikkinn Anastasios Douvikas og Senegalinn Assane Diao skoruðu mörk Como í leiknum.

Como hefur ekki gefist upp á draumnum um að komast í Meistaradeildina á næsta ári, en liðið er með 61 stig, tveimur stigum frá Juventus sem er í 4. sætinu. Mikael og félagar eru á meðan í 14. sæti með 39 stig.

Torino 2 - 2 Inter
0-1 Marcus Thuram ('23 )
0-2 Yann Bisseck ('61 )
1-2 Giovanni Simeone ('70 )
2-2 Nikola Vlasic ('79 , víti)

Genoa 0 - 2 Como
0-1 Anastasios Douvikas ('10 )
0-2 Assane Diao ('68 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 34 19 10 5 48 27 +21 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 34 17 10 7 59 28 +31 61
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 34 13 7 14 41 44 -3 46
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 34 11 8 15 39 56 -17 41
14 Genoa 34 10 9 15 40 48 -8 39
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Lecce 34 7 8 19 22 46 -24 29
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 34 2 12 20 24 61 -37 18
Slapp
banner
banner
banner