PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 16:33
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Kane hetjan í ótrúlegri endurkomu - Tap hjá Ísaki
Harry Kane fullkomnaði endurkomu Bæjara
Harry Kane fullkomnaði endurkomu Bæjara
Mynd: EPA
Ísak Bergmann var í tapliði
Ísak Bergmann var í tapliði
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þýskalandsmeistarar Bayern München halda áfram að raða inn sigrum þrátt fyrir að hafa tryggt sér titilinn, en liðið þurfti vissulega að hafa vel fyrir því gegn Mainz í dag.

Bayern varð meistari síðustu helgi eftir að hafa unnið erkifjendur sína í Stuttgart.

Vincent Kompany hefur aðeins verið að breyta liðinu og gefið þeim leikmönnum sem hafa spilað færri mínútur að fá að spreyta sig.

Það virkaði ekkert sérlega vel í fyrri hálfleiknum. Staðan var 3-0 fyrir Mainz þegar flautað var til loka fyrri hálfleik og sá Kompany sig tilneyddan til þess að gera breytingar.

Bæjarar komu til baka. Nicolas Jackson skoraði á 53. mínútu og minnkaði Michael Olise muninn tuttugu mínútum síðar.

Jamal Musiala og Harry Kane fullkomnuðu endurkomuna á þremur mínútum undir lok leiks og tryggðu Bayern ótrúlegan sigur. Ein af endurkomum ársins í deildinni.

Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Köln sem tapaði fyrir Bayer Leverkusen, 2-1, á heimavelli. Köln er í 14. sæti með 31 stig þegar þrjár umferðir eru eftir og enn í hættu á að falla niður um deild.

Úrslit og markaskorarar:

Wolfsburg 0 - 0 Borussia M.
Rautt spjald: Jens Castrop, Borussia M. ('90)

Heidenheim 2 - 0 St. Pauli
1-0 Budu Zivzivadze ('3 )
2-0 Eren Dinkci ('82 )

Augsburg 1 - 1 Eintracht Frankfurt
1-0 Anton Kade ('44 )
1-1 Ritsu Doan ('66 )

Koln 1 - 2 Bayer
0-1 Patrik Schick ('43 , víti)
0-2 Patrik Schick ('52 )
1-2 Gian-Luca Waldschmidt ('77 )

Mainz 3 - 4 Bayern
1-0 Dominik Kohr ('15 )
2-0 Paul Nebel ('29 )
3-0 Sheraldo Becker ('45 )
3-1 Nicolas Jackson ('53 )
3-2 Michael Olise ('73 )
3-3 Jamal Musiala ('80 )
3-4 Harry Kane ('83 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 31 26 4 1 113 32 +81 82
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 31 19 5 7 62 38 +24 62
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Leverkusen 31 16 7 8 62 42 +20 55
6 Hoffenheim 31 16 7 8 60 45 +15 55
7 Frankfurt 31 11 10 10 56 58 -2 43
8 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
9 Augsburg 31 10 7 14 39 55 -16 37
10 Mainz 31 8 10 13 39 49 -10 34
11 Gladbach 31 7 11 13 36 50 -14 32
12 Hamburger 31 7 11 13 34 49 -15 32
13 Union Berlin 31 8 8 15 35 55 -20 32
14 Köln 31 7 10 14 45 53 -8 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 31 6 8 17 26 53 -27 26
17 Wolfsburg 31 6 7 18 41 66 -25 25
18 Heidenheim 31 5 7 19 35 66 -31 22
Slapp
banner
banner