Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 20:43
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Fylkir tók síðasta sætið í 16-liða úrslitum
Fylkir er komið í 16-liða úrslit
Fylkir er komið í 16-liða úrslit
Mynd: Fylkir
HK 2 - 3 Fylkir
0-1 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('3 )
1-1 Cally Queen Togiai ('23 )
1-2 Harpa Karen Antonsdóttir ('35 )
1-3 Erna Þurý Fjölvarsdóttir ('67 )
2-3 Henríetta Ágústsdóttir ('87 )

Fylkir er komið áfram í 16-liða úrslit í Mjólkurbikar kvenna eftir að hafa unnið 3-2 sigur á HK í Kórnum í kvöld.

Hildur Anna Brynjarsdóttir skoraði á 3. mínútu leiksins áður en Cally Queen Togiai jafnaði metin tuttugu mínútum síðar. Harpa Karen Antonsdóttir kom Fylki aftur yfir á 35. mínútu og náðu gestirnir mikilvægri tveggja marka forystu á 67. mínútu er Erna Þurý Fjölrvarsdóttir setti boltann í netið.

Henríetta Ágústsdóttir minnkaði muninn þremur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma, en það var of seint og er það Fylkir sem tekur síðasta sætið í 16-liða úrslitum keppninnar.
Slapp
banner
banner
banner
banner