Alex Freyr Elísson var á skotskónum þegar NSÍ Runavík gerði grátlegt jafntefli gegn Skala Itrottafélag í færeysku deildinni í dag.
Daniel Obbekjær, fyrrum leikmaður Breiðabliks, kom NSÍ í 2-1 snmma í seinni hálfleik og Alex Freyr bætti þriðja markinu við stuttu síðar. Það var ansi langur uppbótatíma en Skala jafnaði metin þegar 15 mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíima. Leiknum lauk því með 3-3 jafntefli.

NSÍ er á toppnum með 17 stig eftir sjö umferðir. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari liðsins.
Logi Hrafn Róbertsson var í byrjunarliði Varnamo sem vann Oddevold 3-1 í 4. umferð í sænsku B-deildinni. Varnamo er á toppnum eftir fjórar umferðir með níu stig en liðið hefur unnið þrjá leiki í röð. Srdjan Tufegdzic, Túfa, er þjálfari liðsins.
Daníel Freyr Kristjánsson var í byrjunarliði Fredericia sem tapaði 2-0 gegn OB í efstu deild í Danmörku. Fredericia er í næst neðsta sæti með 30 stig, stigi frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.
Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði Valerenga sem steinlá 5-1 gegn Molde í efstu deild í Noregi. Valerenga er með sjö stig eftir sex umferðir.