Hollenski varnarmaðurinn Nathan Ake kemur til með að yfirgefa Manchester City í sumar eftir sex tímabil hjá félaginu.
Ake, sem er 31 árs gamall, er samningsbundinn Man City til ársins 2027 en þrátt fyrir það er býsna líklegt að hann muni yfirgefa félagið í sumar.
Ake, sem er 31 árs gamall, er samningsbundinn Man City til ársins 2027 en þrátt fyrir það er býsna líklegt að hann muni yfirgefa félagið í sumar.
City er samkvæmt The Athletic opið fyrir því að Ake muni fara annað í sumar.
Ake gekk í raðir City frá Bournemouth tímabilið 2020. Hann hefur leyst alls konar stöður fyrir City á tíma sínum hjá félaginu og reynst vel fyrir liðið.
Ake hefur á yfirstandandi tímabili komið við sögu í 29 leikjum í öllum keppnum.




