Fylkismenn sigruðu Leikni 3-0 á Tekk vellinum í Árbæ í kvöld. Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með sigurinn.
"Frammistaðan var heilt yfir ágæt. Við vorum ekki með góða stjórn á leiknum í fyrri hálfleik, Leiknir eru með gott lið og þetta var stál í stál. Sóknarlega vorum við óþolinmóðir, við náðum betri stjórn í seinni hálfleik. Mér fannst við spila bara heilt yfir vel í seinni hálfleik og ég held að á endanum var þetta sanngjarn sigur"

Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 0 Leiknir R.
"Mér fannst leikurinn vinnast á föstum leikatriðum, mér fannst við alltaf líklegir og K.S. (Kári Sigfússon) á skilið eina freyðivín hjá mér"
Fylkismenn eru á toppnum eftir sex umferðir og hafa unnið þrjá leiki í deildinni í röð.
"Næst er það erfiður leikur á móti Aftureldingu í Mosfellsbæ og þeir hafa verið að spila vel upp á síðkastið þannig að við fögnum aðeins í kvöld og byrjum að undirbúa okkur á morgun."
Fullt viðtal við Heimi er í spilaranum hér að ofan.