Lionel Messi og Neymar eru meðal þeirra sem valdir eru í úrvalslið riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Goal valdi liðið en á mánudaginn verður dregið í 16-liða úrslitin.
Ethan Horvath | Club Brugge - Óvænt nafn í markinu. Bandaríski markvörðurinn spilaði seinni helming riðlakeppninnar og á stóran þátt í því að belgíska liðið komst í Evrópudeildarsæti.
Joshua Kimmich | Bayern München - Orðinn lykilhlekkur hjá Þýskalandsmeisturunum og er búinn að finna sína stöðu í hægri bakverði.
Matija Nastasic | Schalke - Þessi fyrrum varnarmaður Manchester City var frábær með Schalke í riðlakeppninni og hjálpaði liðinu í 16-liða úrslit.
Aymeric Laporte | Manchester City - Frakkinn ungi er orðinn klettur í vörn City og virðist verða betri með hverjum leiknum.
Axel Witsel | Borussia Dortmund - Hefur þaggað niður í efasemdarröddum. Kom frá Kína og varð strax gríðarlega mikilvægur hlekkur hjá Dortmund.
Miralem Pjanic | Juventus - Bosníumaðurinn er alvöru leikstjórnandi á miðju Juventus. Öflugur í vörn og sókn.
Athugasemdir