Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 14. júní 2019 14:30
Arnar Daði Arnarsson
Þróttur Vogum leikur á Vogaídýfuvellinum
Þróttur V.
Þróttur V.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Knattspyrnudeild Þróttar Vogum og Vogabær ehf. framleiðandi Vogaídýfu hafa skrifað undir samstarfssamning. Samningurinn er til tveggja ára og mun heimavöllur Þróttar Vogum bera nafnið Vogaídýfuvöllurinn næstu tvö árin.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir Þrótt Vogum enda hefur samstarfið við Vogabæ verið frábært. Við erum ánægð með að tengja okkur við Vogaídýfuna með þessum hætti. Vogabær er öflugt fyrirtæki sem hefur metnað til að standa sig vel og er keyrt áfram af góðri liðsheild. Okkur hlakkar til áframhaldandi samstarfs," segir Haukur Harðarson formaður knattspyrnudeildar hjá Þrótti.

„Ævintýri Vogaídýfunnar hófst í Vogum á sínum tíma, við erum stolt af uppruna hennar.Íþróttafélagið í sama sveitarfélagi hefur staðið sig vel í sínu starfi. Það var skemmtilegt að heimsækja félagið í gær og hitta alla sem fyrir það starfa. Hér er kraftmikið fólk sem sinnir fórnfúsu starfi og hefur gert það mjög myndarlega. Vogaídýfa óskar Þrótti Vogum velfarnaðar á næstu árum. Áfram Þróttur,“ segir Þórhallur Baldursson sölustjóri Vogabæjar ehf.

Þróttur Vogum leikur í 2. deildinni og er í 8. sæti deildarinnar með átta stig að loknum sex umferðum.
Athugasemdir
banner
banner