Ibrahima Konate hefur opnað sig um erfiða baráttu við þunglyndi eftir fráfall Diogo Jota og föður síns.
Franski miðvörðurinn, sem er á förum frá Liverpool í sumar, ræddi opinskátt um erfiða tíma í útvarpsviðtali í heimalandinu.
Franski miðvörðurinn, sem er á förum frá Liverpool í sumar, ræddi opinskátt um erfiða tíma í útvarpsviðtali í heimalandinu.
„Það er ennþá erfitt að trúa þessu. Skápurinn hans var enn í klefanum og á hverjum degi þegar ég fór á æfingu var eins og hann væri enn með okkur,“ sagði Konate um andlát Jota.
Á sama tíma glímdi faðir hans við erfið veikindi og lést hann í janúar. „Ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Ég vissi ekki hvort ég ætti að fara heim og hætta að spila, því liðið þurfti líka á mér að halda. Ég talaði ekki við neinn um þetta og hélt þessu öllu inni,“ sagði Konate.
Hann missti af þremur leikjum eftir föðurmissinn en í endurkomuleiknum skoraði hann fjórða markið í 4-1 sigri á Newcastle og fagnaði hann innilega föður sínum til heiðurs.
Frakkinn segir erfiða tíma og þunglyndi líka eiga við um fótboltamenn og segir enga skömm í því að tjá sig um vanlíðan.



