Thelma Karen Pálmadóttir er gjaldgeng til að spila með U19 landsliðinu í lokakeppni Evrópumótsins í sumar. Hún varð 18 ára gömul fyrr í sumar og er hluti af A-landsliði Íslands þessa stundina en U19 landsliðið tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í Bosníu og Hersegóvínu sem hefst í lok júní.
Thelma Karen ræddi við Fótbolta.net í gær í Kraká þar sem hún er í verkefni með A-landsliðinu og var þar spurð út í mótið í sumar, hvort hún fari með á það.
Thelma Karen ræddi við Fótbolta.net í gær í Kraká þar sem hún er í verkefni með A-landsliðinu og var þar spurð út í mótið í sumar, hvort hún fari með á það.
„Þær stóðu sig ekkert eðlilega vel," sagði Thelma Karen um vinkonur sínar í U19 landsliðinu. Hún var í verkefni með A-landsliðinu er þær komust inn á mótið.
„Ég var ekkert smá stolt af þeim, að vinna Danmörku loksins en við höfum tapað á móti þeim alltof oft. Það var ógeðslega gaman að fylgjast með þeim."
Ætlar þú að taka þátt í lokakeppninni?
„Það er ekki í mínum höndum. Ég treysti þjálfaranum mínum, fólkinu í Häcken og Donna (þjálfara U19 landsliðsins) að taka ákvörðun um þetta. Það er langt tímabil hjá Häcken. Ég veit ekki, hef ekki hugmynd."
Thelma Karen er lykilmaður fyrir Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. Þetta er samt sem áður spennandi tækifæri.
„Að fara á stórmót með yngri landsliði er örugglega geðveikt skemmtilegt og það yrði sjúklega spennandi að fara. Ég tek niðurstöðunni hver sem hún verður, en það yrði geðveikt að fara."




