Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 20:40
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Albert tekinn af velli í hálfleik í stóru tapi
Tímabilið hjá Fiorentina hefur verið mikil vonbrigði
Tímabilið hjá Fiorentina hefur verið mikil vonbrigði
Mynd: EPA
Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina töpuðu fyrir Roma, 4-0, í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Rómverjar fóru með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn. Gianluca Mancini stangaði þeim yfir á 13. mínútu áður en brasilíski bakvörðurinn Wesley bætti við öðru með laglegu innanfótarskoti fjórum mínútum síðar.

Mario Hermoso gerði þriðja markið á 34. mínútu eftir frábæran undirbúning Manu Kone.

Í hálfleik skipti Paolo Vanoli, þjálfari Fiorentina, þremur mönnum af velli, þar á meðal Alberti.

Rómverjar voru ekki hættir. Miðjumaðurinn Niccolo Pisilli rak síðasta naglann í kistu Fiorentina þegar rúmur hálftími var eftir með skalla eftir fyrirgjöf Donyell Malen.

Lazio vann 2-1 endurkomusigur á fallbaráttuliði Cremonese. Federico Bonazzoli kom liðinu yfir á 29. mínútu, en í síðari hálfleik jafnaði Daninn Gustav Isaksen áður en Tijjani Noslin gerði sigurmarkið undir lok leiks.

Cremonese er í 18. sæti með 28 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Roma 4 - 0 Fiorentina
1-0 Gianluca Mancini ('13 )
2-0 Wesley ('17 )
3-0 Mario Hermoso ('34 )
4-0 Niccolo Pisilli ('58 )

Cremonese 1 - 2 Lazio
1-0 Federico Bonazzoli ('29 )
1-1 Gustav Isaksen ('53 )
1-2 Tijjani Noslin ('90 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 36 27 4 5 84 31 +53 85
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
4 Juventus 35 18 11 6 58 30 +28 65
5 Roma 35 20 4 11 52 29 +23 64
6 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 36 13 12 11 39 36 +3 51
9 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
10 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 35 8 13 14 38 49 -11 37
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 35 8 8 19 24 47 -23 32
18 Cremonese 35 6 10 19 27 53 -26 28
19 Verona 35 3 11 21 24 57 -33 20
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner