Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 10:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bað um skiptingu í hálfleik
Tomic kom til ÍBV fyrir síðasta tímabil.
Tomic kom til ÍBV fyrir síðasta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli í gær þegar Milan Tomic, leikmaður ÍBV, var skipt af velli í hálfleik þegar Breiðablik mætti til Vestmannaeyja.

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, sagði við Fótbolta.net að Tomic hefði beðið um skiptingu. Serbneski miðjumaðurinn hefur byrjað alla leiki ÍBV til þessa á tímabilinu.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  2 Breiðablik

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá bað hann um skiptingu, hann var þreyttur, en ég er sammála þér að hann getur gert betur. Ég sá hann í vetur gera betur, bæði varnarlega og sóknarlega. Þetta getur tekið tíma, en ég held að fljótlega verði hann sá leikmaður sem hann var á síðasta ári og í vetur," sagði Linta við Tryggva Guðmundsson eftir leikinn.

Þess má geta að Tomic hefur fengið fjögur gul spjöld í fimm leikjum í deildinni og er fyrstur til að fara í leikbann vegna uppsafnaðra áminninga. Hann spilar ekki gegn KA í næstu umferð.

Drógu stutta stráið

„Við vorum óheppnir með leikjaniðurröðunina. Við munum spila á móti 5-6 bestu liðum Íslands í fyrstu 6-7 leikjunum. Svona er þetta og við verðum að berjast í gegnum það," sagði Linta en framundan eru leikir gegn KA og Víkingi.

ÍBV er með eitt stig eftir fyrstu fimm umferðirnar.
Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 6 6 0 0 25 - 11 +14 18
2.    Víkingur R. 6 5 1 0 19 - 4 +15 16
3.    Fram 6 4 1 1 18 - 11 +7 13
4.    Breiðablik 6 3 3 0 11 - 5 +6 12
5.    Valur 6 3 0 3 13 - 12 +1 9
6.    Keflavík 6 2 1 3 9 - 11 -2 7
7.    Stjarnan 6 2 0 4 13 - 16 -3 6
8.    Þór 6 2 0 4 5 - 17 -12 6
9.    ÍA 6 1 2 3 7 - 13 -6 5
10.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
11.    FH 6 0 2 4 11 - 18 -7 2
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner