Bruno er 31 árs gamall og er með eitt ár eftir af samningi við Man Utd, með möguleika á framlengingu. Talið er að hann megi yfirgefa félagið þegar hann vill eftir allt sem hann hefur gefið.
Það er ekki leyndarmál að Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United hafnaði ýmsum risatilboðum til þess að vera áfram lykilmaður í sögufrægu liði Rauðu djöflanna.
Það virðist ekki leika neinn vafi á ástinni sem Fernandes ber til Man Utd og er hann duglegur að svara spurningum þess efnis.
„Gleðin og hamingjan sem munu fylgja því að vinna loksins titil með Man United er eitthvað sem ég veit að ég gæti aldrei upplifað hjá neinu öðru félagi í heimsfótboltanum. Ég veit hversu mikið stuðningsmennirnir þrá að vinna titil, ég veit hvað þeir eru ástríðufullir og ég veit að þeir eru að bíða eftir ástæðu til að fagna á ný," sagði Fernandes við Sky Sports.
„Ég fékk tækifæri til að yfirgefa Man Utd fyrir þremur árum, fyrir tveimur árum og ég hefði aftur getað farið í fyrra. Ég elska að vera hjá þessu félagi og ég trúi því að ég gæti aldrei upplifað sömu hamingju við að vinna titil hjá öðru félagi og ég mun gera þegar ég vinn titil hér.
„Ég er á sama báti og stuðningsmennirnir. Ég vil að þessi bátur sigli eins mikið áfram og hann getur, frekar en að halda sér stöðugum."



