Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atanga búinn í aðgerð og spilar ekki meira í ár - „Væri byrjunarliðsmaður í hverju einasta liði í deildinni"
Búinn í að gerð.
Búinn í að gerð.
Mynd: Aðsend
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Þór varð fyrir áfalli strax á fyrstu mínútu leiksins gegn KA á laugardag þegar Isaac Atanga, kantmaður liðsins, meiddist alvarlega. Atanga reyndi að komast fyrirgjöf frá Kára Gautasyni, leikmanni KA, og fótbrotnaði þegar hann fór með hægri löppina í Kára. Hann lá á vellinum í um sjö mínútur áður en hann var borinn af velli og í sjúkrabíl.

Isaac er 25 ára Ganverji, kantmaður sem kom frá sænska félaginu Kalmar í vetur. Hann kom til Evrópu í Right To Dream akademíuna hjá Nordsjælland, spilaði flott tímabil í dönsku úrvalsdeildinni og hefur spilað í MLS-deildinni í Ameríku.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  1 KA

„Líðan hans er góð, hann er búinn í aðgerð, illa brotinn, sköflungurinn fór í tvennt. Aðgerðin gekk vel," segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, við Fótbolta.net.

„Hann verður frá í langan tíma. Nei, það eru engar líkur á því að hann spili aftur á þessu tímabili, ekki nema það verði til einhver tækni og hann getur fengið nýjan fót. Hann stígur ofan á Kára, flækist mögulega eitthvað í skónum hans, er með allan þungan á löppinni og þá kemur einhver spenna á sköflunginn sem tekur hann í tvennt. Sturlað óhapp."

Er vitað hvernig hann vill haga endurhæfingunni?

„Hann þarf að hitta lækninn sem hann fór í aðgerð hjá aftur eftir fimm vikur. Núna er hann að jafna sig andlega á þessu áfalli og við tökum næstu daga í að setja niður eitthvað plan á endurhæfingu. Hann er á þriggja ára samningi hjá okkur og við vonumst til þess að hann komi til baka með okkur á einhverjum tímapunkti. Við munum hjálpa honum í endurhæfingunni."

„Hann er mjög jákvæður. Hann talaði við foreldra sína í gær, þau vita ekki hvað fótbolti er og hann var að róa þau niður og útskýrði að þetta væri hluti af fótboltanum. Hann er brosmildur og flottur."


Siggi nefndi eftir leikinn að þetta væri mikið áfall og talaði um að Atanga væri mjög gæðamikill leikmaður.

„Hann var farinn að líta rosalega vel út og við vorum ekkert eðlilega spenntir fyrir honum. Að einhverju leyti vorum við farnir að stilla upp okkar leik út frá hans gæðum í bæði vörn og sókn. Hann er besti pressuleikmaður sem ég hef séð, þannig það er mikið högg fyrir okkur varðandi þróun á leikstíl að missa hann út. Það er áskorun að finna lausnir, en við munum finna þær. Við höfum talað um að við séum með breiðan hóp og öflugan bekk, það kemur maður í manns stað. En það er gríðarlegt högg að missa mann af þessu kaliberi og ég er handviss um að hann væri byrjunarliðsmaður í hverju einasta liði í deildinni. Það er extra áskorun að glugginn sé lokaður og ekki hægt að fara þá leiðina."

Óbragðið töluvert minna út af frammistöðunni
Varðandi leikinn á laugardaginn, er eitthvað sem þú tekur út úr honum eftir á?

„Við vorum smá seinir í gang eftir að Isaac meiðist, tók okkur smá tíma að ná okkur, en við náðum okkur og mér fannst við hrikalega flottir. Frammistaða og umgjörð sem ég held að Þórsarar geta verið mjög stoltir af. Þetta var mjög 'tense' leikur sem hefur rosaleg áhrif á gæði leiksins, en mér fannst við eiga betur við það en þeir og mér fannst við hlaupa völlinn betur og líta á heildina betur út en þeir. En úrslitin voru ömurleg. Ég held að óbragðið sé töluvert minna út af frammistöðunni, en það er ekkert sem kemur í veg fyrir það (óbragðið) þegar maður tapar fyrir KA. Menn voru jákvæðari eftir leik heldur en þeir bjuggust við eftir að hafa tapað fyrir KA."

Fara jákvæðir inn í leikinn gegn Víkingi
Næsti leikur er útileikur gegn Víkingi á föstudag, besta liði landsins ásamt kannski KR á þessum tímapunkti. Hvernig leggur þú það upp?

„Við þurfum að fara brattir inn í þann leik eftir síðustu tvo leiki, þó að þeir hafi tapast. Við höfum rætt það okkar á milli að síðustu tveir leikir hafa verið lengstu kaflarnir okkar í sumar þar sem við höfum verið góðir. Við förum jákvæðir inn í leikinn, höfum þorað miklu meiru í síðustu tveimur leikjum sem er svakalega mikilvægt."

Endurheimtir mann úr veikindum
Áttu von á því að endurheimta Sigfús Fannar Gunnarsson og Birgi Ómar Hlynsson fljótlega?

„Biggi verður smá frá, en ég býst við Fúsa klárum í næsta leik. Hann er búinn að glíma við leiðinleg veikindi sem hann er að hrista af sér."
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    Keflavík 5 1 1 3 6 - 10 -4 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner
banner