Bournemouth og Crystal Palace eigast við í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir Bournemouth sem er í harðri baráttu um sæti í Evrópudeildinni fyrir næsta haust. Bournemouth getur vippað sér upp í evrópudeildarsæti með sigri gegn Palace í dag.
Andoni Iraola, þjálfari Bournemouth, gerir tvær breytingar á liðinu sem gerði jafntefli við Leeds um síðustu helgi. Rayan kemur inn á kantinn og fær Tyler Adams byrjunarliðssæti á miðjunni. Ryan Christie og David Brooks setjast á bekkinn í staðinn.
Á sama tíma gerir Oliver Glasner þjálfari Palace mikið af breytingum á byrjunarliðinu sínu til að hvíla menn fyrir undanúrslit Sambandsdeildarinnar. Palace er svo gott sem búið að missa af evrópusæti í úrvalsdeildinni og þarf því að vinna Sambandsdeildina til að komast í Evrópu á næstu leiktíð.
Palace er í góðri stöðu í undanúrslitunum eftir að hafa unnið fyrri leikinn á útivelli gegn Shakhtar Donetsk.
Glasner gerir fimm breytingar á liðinu sem lagði Shakhtar að velli. Ismaila Sarr, Jean-Philippe Mateta, Tyrick Mitchell, Chris Richards og Adam Wharton fá allir hvíld í dag og setjast á bekkinn.
Jörgen Strand Larsen, Chadi Riad, Brennan Johnson, Justin Devenny og Jefferson Lerma koma inn í byrjunarliðið.
Bournemouth: Petrovic, Jimenez, Hill, Senesi, Truffert, Adams, Scott, Tavernier, Rayan, Evanilson, Kroupi Jr.
Varamenn: Mandas, Gannon-Doak, Adli, Brooks, Smith, Enes Unal, Christie, Diakite, Toth.
Crystal Palace: Henderson, Munoz, Lacroix, Canvot, Riad, Devenny, Lerma, Kamada, Pino, Johnson, Strand-Larsen.
Varamenn: Benitez, Matthews, Mitchell, Clyne, Richards, Cardines, Sarr, Mateta, Wharton.


