Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Endurkomusigrar hjá Blikum og Skagamönnum
Sigurmarki Viktors Jónssonar fagnað.
Sigurmarki Viktors Jónssonar fagnað.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Tveimur af fjórum leikjum dagsins í Bestu deildinni er lokið. Breiðablik og ÍA unnu endurkomusigra.

Blikar heimsótti Eyjamenn en heimamenn fengu algjöra draumabyrjun. Anton Ari Einarsson var alltof lengi að athafna sig og Liam Daði Jeffs náði boltanum af honum. Hann barst til Róberts Elís Hlynssonar sem gaf hann á Liam sem skoraði.

Kristófer Ingi Kristinsson jafnaði metin þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Davið Ingvarssyni.

Blikar náðu forystunni eftir tæplega klukkutíma leik. Anton Logi Lúðvíksson sendi fyrir og Kristófer skallaði boltann til VIktors Karls Einarssonar sem skoraði.

Eyjamenn voru nálægt því að jafna metin strax í kjölfarið en Anton Ari bjargaði á síðustu stundu. Eyjamenn settu pressu á Blika undir lokin en nær komust þeir ekki og sigur Blika staðreynd.

Skagamenn heimsóttu Stjörnumenn í Garðabæinn. Benedikt Warén kom heimamönnum yfir þegar hann skoraði með góðu skoti í fjærhornið úr teignum.

Emil Atlason var nálægt því að bæta við marki undir lok fyrri hálfleiks en Árni Marinó Einarsson varði frábærlega frá honum. Hann komst síðan einn gegn Árna strax í upphafi seinni hálfleiks en skotið ekki nægilega gott.

Skagamenn jöfnuðu eftir tæplega klukkutíma leik. Markús Páll Ellertsson fékk mikið pláss og skoraði örugglega.

Bæði lið fengu góð færi til að skora undir lokin en það voru Skagamenn sem skoruðu sigurmarkið. Það var löng sending fram völlinn og Viktor Jónsson komst framhjá Árna Snæ Ólafssyni og skoraði á opið markið.

Blikar eru í 2. sæti með 11 stig, Stjarnan í 6. sætii með sex, ÍA í 8. sæti með fimm og ÍBV á botninum aðeins með eitt stig.

ÍBV 1 - 2 Breiðablik
1-0 Liam Daði Jeffs ('1 )
1-1 Kristófer Ingi Kristinsson ('21 )
1-2 Viktor Karl Einarsson ('58 )
Lestu um leikinn

Stjarnan 1 - 2 ÍA
1-0 Benedikt V. Warén ('10 )
1-1 Markús Páll Ellertsson ('58 )
1-2 Viktor Jónsson ('87 )
Lestu um leikinn
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
3.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
4.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
10.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner
banner