Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 11:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lewandowski mjög ánægður með Rashford
Lewandowski og Rashford hafa verið að ná vel saman á tímabilinu.
Lewandowski og Rashford hafa verið að ná vel saman á tímabilinu.
Mynd: EPA
Marcus Rashford og Robert Lewandowski tengdu vel saman í sigri Barcelona gegn Osasuna í gær sem fer langleiðina með að tryggja Börsungum Spánarmeistaratitilinn.

Lewandowski kláraði af stuttu færi eftir glæsilega fyrirgjöf frá Rashford og hrósaði liðsfélaga sínum að leikslokum.

„Rashford er ótrúlega góður að gefa boltann fyrir markið. Stundum þá snýst þetta ekki um kraft, heldur nákvæmni. Þessi fyrirgjöf frá honum í dag var falleg, þetta var fullkomin sending," sagði Lewandowski eftir lokaflautið.

Það eru góðar líkur að bæði Rashford og Lewandowski haldi á ný mið í sumar þegar samningar þeirra renna út. Rashford er á láni frá Manchester United og geta Börsungar keypt hann til sín fyrir svo lítið sem 30 milljónir evra. Kantmaðurinn er að njóta lífsins í Barcelona og er tilbúinn til að taka á sig launalækkun til að skipta um félag.

„Barca náði í mig til að hjálpa við að vinna titla og það er nákvæmlega það sem ég er að reyna að gera. Við erum nálægt því að vinna titilinn!" sagði Rashford að leikslokum.

   29.04.2026 07:30
Rashford tilbúinn að helminga launin sín

Slapp
banner
banner
banner