Hollenski varnarmaðurinn Micky van de Ven er talinn vilja verulega há laun hjá næsta félagi sem hann semur við en þetta segir CaughtOffside.
Van de Ven, sem er 25 ára gamall, vill fara frá Tottenham í sumar vegna slaks gengis liðsins á síðustu árum.
Liverpool og Manchester United eru bæði að fylgjast með stöðu mála hjá Hollendingnum sem er verðmetinn á 60 til 80 milljónir punda.
CaughtOffside segir að það verði ekki auðvelt að hreppa þennan leikmann og þá aðallega af því hann vill þéna um 200 þúsund pund í vikulaun.
Vandamálið með Van de Ven er hins vegar það að hann er meiðslagjarn og þá hefur frammistaða hans ekki verið sannfærandi á slöku tímabili Tottenham, því er erfitt að réttlæta launakröfur leikmannsins.
Ef Tottenham fellur niður í B-deildina gæti félagið neyðst til að selja hann á lægra verði, en Liverpool og Man Utd munu líklega segja pass ef hann lækkar ekki launakröfurnar.



