Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   sun 03. maí 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Arteta verður límdur við skjáinn - „Ég elska fótbolta“
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Mikel Arteta ætlar að sitja límdur við skjáinn á morgun þegar Manchester City heimsækir Everton á Hill Dickinson-leikvanginum á morgun.

Lærisveinar Arteta í Arsenal unnu öruggan 3-0 sigur á Fulham í deildinni í gær og eru nú með sex stiga forystu á Manchester City í titilbaráttunni.

Man City á tvo leiki til góða og geta komist upp fyrir Arsenal á markatölu, en Arteta mun fylgjast spenntur með gengi City-manna.

City þarf bara að misstíga sig í einum leik og þá er Arsenal komið með þetta í sínar hendur.

„Ég mun horfa á Everton-Man City, en það er bara af því ég elska fótbolta,“ sagði Arteta.

Arsenal hefur ekki unnið ensku úrvalsdeildina síðan 2004, en þá varð liðið það fyrsta til að fara taplaust í gegnum deildina með 26 sigra og tólf jafntefli.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brentford 35 14 9 12 52 46 +6 51
7 Brighton 35 13 11 11 49 42 +7 50
8 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
9 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
10 Fulham 35 14 6 15 44 49 -5 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 35 12 11 12 37 46 -9 47
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
15 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 35 3 9 23 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner
banner