Sögufrægu liði Wrexham tókst ekki að afreka hið ótrúlega eftir magnaðan uppgang í enska deildakerfinu á síðustu árum.
Wrexham, sem hafði farið upp um þrjár deildir á þremur árum, mistókst að tryggja sér sæti í umspili Championship deildarinnar fyrir sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Wrexham gerði jafntefli á heimavelli gegn Middlesbrough í síðustu umferð deildartímabilsins en sigur þar hefði nægt til að tryggja sjötta sæti deildarinnar sem er jafnframt síðasta umspilssætið. Wrexham endar því í sjöunda sæti deildarinnar, sem er besti árangur í rúmlega 150 ára sögu félagsins.
Hollywood leikararnir heimsfrægu Ryan Reynolds og Rob McElhenney keyptu Wrexham fyrir fimm árum og hefur félagið vaxið gríðarlega síðan.
„Ég er gjörsamlega miður mín eftir úrslit dagsins en á sama tíma er ég ótrúlega stoltur af tímabilinu sem við höfum átt," skrifaði Reynolds á samfélagsmiðla.
„Við höfum farið langt á fimm árum og þetta var besti árangur í sögu félagsins. Það er meira sem við þurfum að gera til að ná enn lengra, en í bili þá er mjög margt sem við getum verið stoltir yfir."
02.05.2026 13:31
Championship: Ipswich beint upp - Wrexham missir af umspili




