Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í fyrstu leikjum dagsins í kvennaboltanum þar sem Hafrún Rakel Halldórsdóttir átti stórleik í sigri Bröndby.
Hafrún Rakel skoraði og lagði upp í 2-0 sigri gegn Fortuna Hjörring í toppbaráttu danska boltans. Hin 16 ára gamla Mila Bischoff lagði upp fyrra mark leiksins fyrir Hafrúnu og innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik þegar Hafrún endurlaunaði henni greiðann.
Bröndby er í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði HB Köge þegar fjórar umferðir eru eftir. Bröndby heimsækir Köge í gríðarlega mikilvægum slag í næstu umferð.
Í Bandaríkjunum var Sveindís Jane Jónsdóttir í byrjunarliði Angel City FC sem tapaði á heimavelli gegn Utah Royals.
Angel City var sterkara liðið á vellinum en Cloé Lacasse, fyrrum leikmaður ÍBV og Arsenal, náði forystunni á 32. mínútu. Maiara Niehues, samherji Sveindísar í liði Angel City, fékk svo að líta beint rautt spjald í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Tíu heimakonum tókst ekki að jafna metin svo lokatölur urðu 0-1. Þetta var þriðji tapleikur Angel City í röð eftir að liðið hafði unnið þrjá fyrstu leiki deildartímabilsins. Liðið er með 9 stig eftir 6 umferðir. Þetta var fjórði sigur Utah í röð og er liðið með 13 stig eftir 7 umferðir.
Cloé er komin með 2 mörk og 2 stoðsendingar í 7 deildarleikjum. Sveindís er með 3 mörk og 2 stoðsendingar í 6 leikjum þrátt fyrir að hafa hvorki skorað né lagt upp síðustu þrjá leiki.
Í efstu deild í Portúgal kom Ásdís Karen Halldórsdóttir inn af bekknum í sigri hjá Braga gegn Racing Power. Braga siglir lygnan sjó með 21 stig eftir 17 umferðir og er Ásdís búin að skora 2 mörk í 16 leikjum.
Í ítalska boltanum var Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir fjarverandi vegna meiðsla er Parma tapaði á heimavelli gegn Lazio. Parma er búið að bjarga sér frá falli þegar tvær umferðir eru eftir, með 16 stig úr 20 leikjum.
Að lokum mætti Anderlecht til leiks í belgísku toppbaráttunni og gerði afar dramatískt jafntefli við OH Leuven. Andrea Rut Bjarnadóttir var í byrjunarliðinu en Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var ekki í hóp vegna smávægilegra meiðsla.
Leuven náði forystunni snemma leiks á útivelli gegn Anderlecht en róðurinn varð þungur í síðari hálfleik eftir að leikmaður liðsins var rekinn af velli.
Leikmanni fleiri tókst Anderlecht að jafna metin og skoruðu heimakonur sigurmark í uppbótartíma en það var ekki dæmt gilt þrátt fyrir að virðast vera löglegt.
Anderlecht er fjórum stigum á eftir Leuven þegar þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu, en næsti leikur er gríðarlega mikilvægur. Liðin mætast þá aftur í innbyrðisviðureign, en í þetta sinn er Anderlecht á útivelli.
Vigdís, Andrea og stöllur þurfa á sigri að halda þar til að hleypa spennu í titilbaráttuna.
Bröndby 2 - 0 Fortuna Hjörring
1-0 Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('7)
2-0 Mila Bischoff ('69)
Angel City 0 - 1 Utah Royals
0-1 Cloe Lacasse ('32)
Rautt spjald: Maiara Niehues, Angel City ('45+5)
Racing Power 1 - 2 Braga
Parma 1 - 3 Lazio
Vaxjö 1 - 2 Pitea
Nordsjælland 1 - 1 HB Köge
Anderlecht 1 - 1 Leuven


