Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orð Óskars Hrafns sönn - „Þurfa heldur betur að gera það"
FH er í veseni.
FH er í veseni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik FH og fram í gær.
Úr leik FH og fram í gær.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH var 3-1 yfir tapaði 3-4 fyrir Fram.
FH var 3-1 yfir tapaði 3-4 fyrir Fram.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH-ingar hljóta að vera býsna áhyggjufullir eftir byrjun sína á Íslandsmótinu. Þeir eru með eitt stig eftir fimm leiki og töpuðu gegn Fram í fyrsta leik sumarsins á Kaplakrikavelli í gær.

Það sem meira er, þá komst FH í 3-1 en tapaði því niður í seinni hálfleiknum og var niðurstaðan ótrúlegur 3-4 sigur Framara.

„FH-ingar í seinni hálfleik voru vægast sagt hræðilegir, komu bara ekki út," sagði Valur Gunnarsson þegar rætt var um FH í Innkastinu.

„Mér fannst heilt yfir Fram vera betra liðið mestallan leikinn en það var ekki fáránlegt að FH var 3-1 yfir í hálfleik. Þeir voru þokkalega þéttir og gerðu vel úr því sem þeir fengu. Svo bara, strákar, frá fyrstu sekúndu í seinni hálfleik sér maður að Fram mun allavega minnka muninn. Svo minnka þeir muninn og þá er liðið sem er ekki með sjálfstraust... og lið sem vantar leiðtoga"

„Bödda löpp?" sagði Almarr Ormarsson en Böðvar Böðvarsson var eftirminnilega seldur frá FH til ÍA í vetur þar sem krafta hans var ekki óskað hjá Fimleikafélaginu.

„Böddi löpp og Björn Daníel voru þarna í fyrra. Eru það gæjar sem hefðu náð að róa menn í stöðunni 3-1? Það var ekkert þannig. Fram til hrós, þá voru þeir geggjaðir," sagði Valur.

FH er í uppbyggingarstefnu eins og flestir vita en svona úrslit eru ekki boðleg.

„Ef við tölum hreina íslensku, þá er ekki boðlegt að vera 3-1 yfir á heimavelli í hálfleik og tapa 3-4," sagði Almarr. „Það á ekki að gerast, sama hvað lið eiga í hlut ef þú ert í Bestu deildinni. Auðvitað er FH í uppbyggingarstefnu en ég held að það séu ekki margir FH stuðningsmenn ánægðir með þetta."

„Maður sér ekki hver á að stíga upp og rífa þetta í gang þarna þegar kemur smá mótvindur. Ef þeir vinna ekki Fram á grasinu sínu 3-1 yfir, þetta lítur alls ekki nógu vel út. Ég get ímyndað mér að FH-ingar séu ekki sáttir," sagði Valur.

Gæti orðið sársaukafullt
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, tjáði sig um FH eftir leik liðanna í síðustu viku og sagði þá: „Ég hef verið í þeirra sporum, að byggja upp sem gengur ekki alltaf upp og er ekki alltaf beinn og breiður vegur. Ég vona bara að þeir haldi áfram með það sem var ákveðið í upphafi og treysta ferlinu."

„Þetta lítur hræðilega út. Óskar Hrafn talaði um að FH-ingar þyrftu að suffera og þeir þurfa heldur betur að gera það. Þetta verður rosalega þungt," sagði Elvar Geir Magnússon.

„Ég skal vera fyrsti maður til að klappa fyrir þeim ef þetta tekst hjá þeim en akkúrat núna veit ég ekki nákvæmlega hvernig þessi stefna mun skila þeim. Hún var auðvitað ekki að fara að skila þeim Íslandsmeistaratitli eftir fimm umferðir en þetta er skellur fyrir FH-inga," sagði Almarr en hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
Slapp
banner
banner