Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   mán 04. maí 2026 07:30
Mate Dalmay
3. flokkur Þórs mætti U16 ára liði Hellas Verona
Mynd: Soccer & Education USA)
Mynd: Soccer & Education USA)

EH Akademy, knattspyrnuakademía Emil Hallfreðssonar, stóð fyrir æfingaleik í ítölsku borginni Verona þar sem lið Hellas Verona FC U16 mætti 3.fl Þórs frá Akureyri. Leikið var á heimavelli Hellas og lauk leiknum með 3–1 sigri heimamanna.

Leikurinn var hluti af æfingaferð sem EH Akademy skipulagði fyrir Þórsarana. Áhersla er lögð á faglegar æfingar, alþjóðlega reynslu og einstaka upplifun fyrir unga íslenska knattspyrnuiðkendur.


Sterkt orðspor fyrir æfingaferðir til Ítalíu

Á undanförnum árum hefur Emil Hallfreðsson byggt upp öflugt starf í kringum æfingaferðir til Ítalíu í samvinnu við Pursue Iceland. Þar fá þátttakendur tækifæri til að æfa við framúrskarandi aðstæður við Gardavatn í umhverfi sem sameinar fagmennsku, einstaka upplifun og góða skemmtun allra.

Emil stýrir verkefninu sjálfur, tekur virkan þátt í æfingum og gætir þess að allt fari fram eins og best verður á kosið, innan vallar sem utan.

„Það er mjög gefandi og ánægjulegt fyrir mig að geta boðið ungu íslensku knattspyrnufólki á mínar ítölsku heimaslóðir. Hér spilaði ég nánast allan minn feril sem spannar hátt í tvo áratugi og þekki því hvern krók og kima. Gæði æfinganna eru númer eitt, tvö og þrjú í þessu gullfallega ítalska umhverfi en svo er svo margt skemmtilegt líka í boði þess á milli. Ég vil að krakkarnir njóti þess að iðka íþróttina sína og fari heim full af gleði og ánægju af því að spila fótbolta í góðum félagsskap okkar og liðsfélaganna.“

Meira en bara fótbolti

Ferðirnar snúast ekki eingöngu um knattspyrnu heldur einnig um upplifun og samveru. Meðal þess sem þátttakendur fá að njóta eru: Hjólatúrar við Gardavatn, heimsókn í skemmtigarðinn Gardaland, borgarferð til Verona, heimsókn í smábæinn Lazise, sérstök kvöld með ítölskum og alþjóðlegum mat, þar á meðal Rummo pastakvöld og argentísk grillveisla í hótelgarðinum.

Uppselt næsta sumar

Mikil eftirspurn hefur verið eftir æfingaferðum EH Akademy og er nú þegar uppselt í ferðir næsta sumar. Emil býður uppá svokölluð Knattspyrnuævintýri fyrir 13–16 ára iðkendur, auk sérsniðinna æfingaferða fyrir knattspyrnufélög óháð aldri iðkennda.

Ljóst er að verkefnið hefur slegið í gegn og heldur áfram að skapa einstök tækifæri fyrir íslenskt knattspyrnufólk bæði innan vallar sem utan.


Slapp
banner
banner