Endrick er opinn fyrir því að vera áfram hjá Lyon en þessi brasilíski framherji er á láni hjá franska félaginu frá Real Madrid.
Endrick hefur verið frábær hjá franska liðinu en hann hefur komið að 15 mörkum í 19 leikjum. Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann verði hluti af liði Real Madrid á næstu leiktíð.
Endrick hefur verið frábær hjá franska liðinu en hann hefur komið að 15 mörkum í 19 leikjum. Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann verði hluti af liði Real Madrid á næstu leiktíð.
„Ég er mjög ánægður hérna. Verð ég áfram? Ég er ánægður með liðsfélagana, allt gengur mjög vel. Maður veit aldrei hvað gerist, ég mun láta guð sjáu mþað. Ef mér er ætlað að vera í Madrid, verð ég þar. Ef mér er ætlað að framlengja hér mun ég gera það," sagði Endrick.
„Ég myndi gjarnan vilja vera hér. Guð kom mér hingað ég mun gera það sem hann segir mér að gera og hvað konan mín segir mér að gera."




