Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 18:32
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum aðstoðarmaður De Zerbi að taka við úkraínska landsliðinu
Andrea Maldera (t.v) er að taka við úkraínska landsliðinu
Andrea Maldera (t.v) er að taka við úkraínska landsliðinu
Mynd: EPA
Ítalski þjálfarinn Andrea Maldera er að taka við úkraínska karlalandsliðinu sem verður hans fyrsta starf sem aðalþjálfari, en þetta segir Fabrizio Romano.

Maldera vann á yngri árum sínum hjá AC Milan sem tæknilegur stjórnandi í akademíu Milan og síðar sömu stöðu hjá úkraínska landsliðinu undir Andryi Schevchenko, sem hann þekkti frá tíma sínum hjá Mílanóliðinu.

Síðustu ár hefur hann verið aðstoðarmaður Roberto De Zerbi, bæði hjá Brighton og síðast Marseille, en hann kom ekki með honum inn í þjálfarateymið hjá Tottenham.

Hann hefur verið í viðræðum við úkraínska fótboltasambandið um að taka við landsliðinu og hefur hann nú náð samkomulagi við sambandið.

Maldera tekur við af Serhiy Rebrov sem sagði starfi sínu lausu eftir að hafa mistekist að koma Úkraínu á HM.

Fyrsta verkefni Maldera verður að koma Úkraínu á EM sem fer fram eftir tvö ár.
Slapp
banner
banner
banner