Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 16:43
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna: Glódís og stöllur réðu ekki við Barcelona
Fjórði úrslitaleikur liðanna síðan 2019
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Barcelona W 4 - 2 Bayern W
(5-3 samanlagt)
1-0 Salma Paralluelo ('13 )
1-1 Linda Dallmann ('17 )
2-1 Alexia Putellas ('22 )
3-1 Ewa Pajor ('55 )
4-1 Alexia Putellas ('58 )
4-2 Pernille Harder ('71 )

Barcelona er búið að tryggja sér þátttökurétt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sjötta árið í röð eftir frábæran sigur gegn FC Bayern í undanúrslitaleiknum í dag.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Þýskalandi og stjórnuðu Börsungar ferðinni í dag. Barca var talsvert sterkara liðið og náði forystunni með marki frá Salma Paralluelo snemma leiks.

Linda Dallmann jafnaði metin skömmu síðar eftir stoðsendingu frá Pernille Harder en ekki leið á löngu þar til Alexia Putellas endurheimti forystuna.

Staðan var 2-1 í leikhlé en munurinn hefði getað verið talsvert meiri ef heimakonur hefðu nýtt færin sín betur.

Í síðari hálfleik skoruðu Ewa Pajor og Putellas sitthvort markið með þriggja mínútna millibili og virtist það gera endanlega út um viðureignina, en svo var ekki.

Pernille Harder minnkaði muninn niður í tvö mörk á 71. mínútu og kom boltanum svo aftur í netið undir lokin, en ekki dæmt mark vegna brots í aðdragandanum.

Lokatölur urðu því 4-2 í Barcelona og fara þær spænsku í enn einn úrslitaleikinn. Þar mæta þær franska stórveldinu Lyon og verður það fjórði úrslitaleikurinn á milli þessara tveggja félagsliða síðan 2019.

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Bayern.
Slapp
banner
banner
banner