Juventus vill leikmann Manchester City, Newcastle vill halda Osula og Crystal Palace horfir til Iraola. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins í boði Powerade.
Juventus er meðal ítalskra félaga sem hafa áhuga á hollenska miðjumanninum Tijjani Reijnders (27) hjá Manchester City. Hann kom til City frá AC Milan fyrir 46,3 milljónir punda síðasta sumar. (Fotball Insider)
Eddie Howe, stjóri Newcastle United, vill að Will Osula (22) verði áfram á St James' Park en talsverður áhugi er á danska sóknarmanninum. Hann er metinn á 30 milljónir punda en samningur hans rennur út sumarið 2029. (Shields Gazette)
Crystal Palace er með Andoni Iraola efstan á óskalista sínum yfir stjóra fyrir næsta tímabil. Spánverjinn hættir hjá Bournemouth í sumar og hefur meðal annars verið orðaður við Chelsea. (Football Insider)
Real Madrid ætlar að fá brasilíska framherjann Endrick (19) aftur til sín í sumar en hann er hjá Lyon á láni. Arsenal og Chelsea hafa sýnt honum áhuga. (TeamTalk)
Barcelona hefur nánast tryggt sér portúgalska miðjumanninn Bernardo Silva (31) sem mun yfirgefa Manchester City í sumar. (Barca Universal)
Frank Lampard stjóri Coventry vill gera Ross Barkley (32) að sínum fyrstu kaupum eftir að liðið komst upp í úrvalsdeildina. Samningur miðjumannsins við Aston Villa rennur út eftir tímabilið. (Alan Nixon)
Real Sociedad vonast til að koma í veg fyrir að markvörðurinn Alex Remiro (31) fari til Barcelona með því að bjóða honum nýjan samning. (Football Espana)


