U16 landslið karla tapaði 1-2 gegn Lettlandi á þróunarmóti UEFA í Finnlandi.
Bjarki Hrafn Garðarsson, leikmaður Stjörnunnar, skoraði mark Íslands undir lok leiks. Þetta var annar leikur liðsins á mótinu, en það gerði 2-2 jafntefli við Finnlandi í fyrsta leik sínum en tapaði í vítakeppni.
Ísland mætir Írlandi á fimmtudag í síðasta leik sínum á mótinu og hefst sá leikur kl. 08:00 að íslenskum tíma.




