Síðustu leikjum dagsins er lokið hjá atvinnukonunum okkar sem leika erlendis og var nóg um að vera.
Ingibjörg Sigurðardóttir var í byrjunarliðinu í stórsigri hjá Freiburg í efstu deild í Þýskalandi og komst varnarjaxlinn okkar þaulreyndi á blað, lokatölur 1-5.
Freiburg siglir lygnan sjó um miðja deild í Þýskalandi, með 33 stig úr 24 leikjum.
Diljá Ýr Zomers lék þá allan leikinn í stórsigri hjá Brann í norska boltanum og skoraði þrennu auk þess að leggja eitt upp.
Brann skoraði sex mörk gegn Hönefoss og trónir á toppi norsku deildarinnar með 16 stig úr 6 leikjum. Brenna Lovera, fyrrum leikmaður ÍBV og Selfoss, var einnig í byrjunarliði Brann en komst ekki á blað.
Diljá er þar með komin með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar í sex fyrstu leikjum deildartímabilsins í Noregi.
Í efstu deild í Hollandi var hin 18 ára gamla Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir í byrjunarliði PEC Zwolle sem heimsótti FC Twente í áhugaverðum slag.
Zwolle komst í tveggja marka forystu á útivelli þar sem Ragnheiður skoraði seinna mark liðsins, en það dugði ekki til. Heimakonur í liði Twente skoruðu þrjú mörk á síðasta hálftíma leiksins til að snúa stöðunni sér í vil og fara með sigur af hólmi. Lokatölur 3-2.
Zwolle er í fimmta sæti deildarinnar og er búið að missa af allri baráttu um evrópusæti.
Í efstu deild á Ítalíu var Katla Tryggvadóttir í byrjunarliði Fiorentina sem lagði Como að velli, 1-0. Katla lék fyrstu 66 mínútur leiksins áður en henni var skipt af velli fyrir Hlín Eiríksdóttur.
Fiorentina er fimm stigum frá meistaradeildarbaráttunni þegar tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Að lokum mættust Sigdís Eva Bárðardóttir og Heiða Ragney Viðarsdóttir í efstu deild í Svíþjóð. Heiða og stöllur í liði Eskilstuna höfðu betur á útivelli gegn Norrköping.
Eskilstuna er með 6 stig eftir 3 umferðir og skilur Norrköping eftir meðal neðstu liða. Sigdís og stöllur eiga 2 stig eftir 4 umferðir.
Jena 1 - 5 Freiburg
0-1 S. Folmli ('1)
0-2 L. Kolb ('34)
0-3 Ingibjörg Sigurðardóttir ('42)
0-4 S. Nachtigall ('62, víti)
1-4 I. Jaron ('63)
1-5 S. Folmli ('87)
Brann 6 - 0 Hönefoss
1-0 M. Authen ('26)
2-0 Diljá Ýr Zomers ('42)
3-0 T. Svendheim ('45+3)
4-0 Diljá Ýr Zomers ('53)
5-0 Diljá Ýr Zomers ('60)
6-0 A. Aahjem ('91)
Twente 3 - 2 Zwolle
0-1 H. Huizenga ('31)
0-2 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('65)
1-2 M. Rutgers ('67, sjálfsmark)
2-2 J. Ravensbergen ('68)
3-2 Oude Elberink ('80)
Fiorentina 1 - 0 Como
Norrköping 0 - 2 Eskilstuna


