Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 09:09
Elvar Geir Magnússon
Skelfileg helgi fyrir West Ham - 77% líkur á falli
Mynd: EPA
„Þetta var skelfileg helgi fyrir West Ham," segir sparkspekingurinn Alan Shearer.

Eftir að West Ham tapaði 3-0 fyrir Brentford á laugardag opnaðist möguleiki fyrir Tottenham að komast úr fallsæti og það nýttu Roberto De Zerbi og félagar sér; og unnu Aston Villa í gær.

„Ég bjóst ekki við þessu," segir sparkspekingurinn Micah Richards í Match of the Day. „Aston Villa var lélegt en Tottenham á hrós skilið, liðið sýndi mikinn vilja og ákefð. Það var framúrskarandi hvernig þeir voru skipulagðir. Þeir voru virkilega hugrakkir."

Ofurtölvan fræga telur nú 76,77% líkur á að það verði West Ham sem falli úr deildinni. Líkurnar á falli Tottenham eru taldar 20,73%. Reiknað er með því að West Ham endi í kringum 39 stig en Tottenham 44 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 21 9 5 69 32 +37 72
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 10 12 52 46 +6 52
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp