Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 12:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hrós frá Grímsa: Maður lendir mjög sjaldan í þessu á Íslandi
Stuðningsmenn Þórs sendu nokkrar pillur á leikmenn KA þegar þeir gengu til búningsklefa löngu fyrir leik.
Stuðningsmenn Þórs sendu nokkrar pillur á leikmenn KA þegar þeir gengu til búningsklefa löngu fyrir leik.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Stemning hjá KA mönnum.
Stemning hjá KA mönnum.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Það var sturlað. Það var banter hjá báðum stuðningsmannasveitum sem var geðveikt. Ég ákvað að svara þeim aðeins þarna þegar ég skoraði. En þetta var bara sturlað og geðveikt að fá allan þennan fjölda í stúkuna, geggjað fyrir bæinn," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, Grímsi, sem skoraði sigurmarkið gegn Þór í Akureyrarslagnum í gær. Hann tók nokkur fögn eftir markið og þ.a.m. eitt fyrir framan stuðningsmenn Þórs.

Hann mætti löngu fyrir leik á VÍS völlinn í Þorpinu en þegar voru stuðningsmenn Þórs mættir og sendur pillur á leikmenn KA þegar þeir gengu framhjá.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  1 KA

„Sturlað, ég þurfti því miður að ganga framhjá Þórsurunum þegar við mættum inn í klefa. Ég mætti tveimur tímum fyrir leik og hélt ég myndi sleppa við það. Það var bara geðveikt, maður fékk smá fiðring þegar maður gekk framhjá þeim. Maður lendir mjög sjaldan í þessu hérna á Íslandi, baðar stuðningsmannasveitir stóðu sig mjög vel," sagði Hallgrímur.

Atli Sigurjónsson, leikmaður Þórs, tók í sama streng í viðtali við Akureyri.net eftir leikinn í gær.

„Það er ógeðslega svekkjandi að leikurinn skyldi þurfa að enda svona því þetta var frábær dagur í alla staði. Að mæta í leikinn og heyra áhorfendur syngja um þig áður en þú nærð að klæða þig í íþróttafötin. Ég hef aldrei nokkurn tíma lent í þessu áður," sagði Atli við Víði Sigurðsson.

Passaði sig að fara ekki í póker við sjálfan sig
Brotið var á Hallgrími inn á vítateig Þórs undir lok leiks og vítaspyrna dæmd. Hann fór sjálfur á punktinn og skoraði.

„Ég var stressaður áður en ég tók upp boltann, ég hugsaði að ég mætti ekki fara í póker við sjálfan mig. En svo hugsaði ég að hann (Aron Birkir í marki Þórs) færi pottþétt í hornið sem ég fer vanalega í. Ég ákvað bara að vera kaldur og fara í hitt. Í Kjarnafæðismótinu tók ég í hitt hornið og hugsaði að hann myndi halda að ég myndi fara í mitt „safety", en ég tók hitt hornið," sagði Hallgrímur.
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Slapp
banner
banner